Hvert námskeið
er 10 vikur og lýkur með skriflegu prófi.
Nemendur fá viðurkenningarskjal í lok námskeiðsins, sem þeir geta framvísað á
alþjóðlegum markaði.
|
Námskeiðsnr: |
Námskeiðslýsing |
Haldið |
|
015501 |
Hvernig á að smyrja brauðsneið án þess að setja elhúsið á hvolf. Skref fyrir skref, sett fram á myndrænan hátt |
Mánudaga 17.00-18.30 |
|
015402 |
Klósetpappír, er það satt að maður eigi sjálfur að setja nýja rúllu á klósettpappírshaldarann? Verkleg æfing á verkstæðinu |
Þriðjudaga 18.00-20.00 |
|
035603 |
Á að lyfta klósettsetunni áður en maður pissar? Er mögulegt að pissa án þess að hitta gólf, veggi eða setuna? Verklegar æfingar |
Mánudagar 18.30-20.00 |
|
035604 |
Grundvallarmunur á baðherbergisgólfinu og þvottakörfunni Mynda, ferla og skipurita - sýning |
Föstudaga 16.30-21.30 |
|
035605 |
Er mögulegt að vera góður elskhugi til lengri tíma litið? Farið verður í grundvallarmuninn á milli ”einnarnæturgamans” og innhaldsríks kynlífs. Þetta námskeið er í 3 þrepum. ”Það þarf meira en tippi til” ”Tímasetning og alúð í verki” ”Konur elska með öllum kroppnum”. Skriflegt próf og meðmæli ”ástkonu” eru nauðsynleg til að færast á milli þrepa. |
Mánudaga 17.30-19.00 |
|
052206 |
Tilvistarkreppa – hefur þú tapað betri helmingnum af sjálfum þér? Stuðningshópar og heimsóknir til íþróttamanna sem hætt hafa að leika. |
Laugard. 19.00-20.30 |
|
072407 |
Lært að leita að hlutum Byrjað verður á því að fara í gegnum hvar hlutir eru geymdir vanalega og stress- og öskurviðbrögð æfð. Leikþættir og raunverulegar lífsreynslusögur |
Miðvikud. 18.00-21.00 |
|
025408 |
Að gefa konunni blóm og tylligjafir hefur ekki skaðleg áhrif á heilbrigðið. Sett fram í mynd- og hljóðformi |
Föstudaga 17.00-20.00 |
|
011709 |
Heilbrigðir menn spyrja til vegar þegar þeir villast Gestafyrirlesarar og dæmi frá raunveruleikanum |
Miðvikud. 19.30-21.00 |
|
102210 |
Konan undir stýri. Er mögulegt að sitja rólegur og hreyta ekki í hana ókvæðum í föstudagsumferðinni Bílhermir |
Mánudaga 18.30-20.00 |
|
101811 |
Hugsum í víddum Farið verður í grunnmismuninn á milli mömmur og kærustu/konu Handbók og hlutverkaleikir. |
Þriðjudaga 20.00-21.00 |
|
171513 |
Hvað er samhengið á milli leikja í ensku deildinni og merkisdaga í fjölskyldunni? Gerð persónulegra samhengiskorta og ”Til hamingju…”æfingar |
Þriðjudaga 18.00-19.30 |
|
Nafn:
Hjúskaparstaða:
Ár frá því að foreldrahúsum var yfirgefið:
Fyrri kunnátta:
Ryksuga Ná í börnin Uppvask Ná í börnin á réttum tíma Þvottur Grunnfærni í innkaupum Búa um rúm
Leiðbeinendur munu hafa samband við umsækjendur, til ráðleggingar um hvaða námskeiðaval og hvaða stig hentar einstaklingnum
Námskeiðshaldarar |