Oppskrifter

ÍRSK KJÖTSÚPA

800 gr. beinlaust lambakjöt
¾ l vatn
salt
piparkorn
láviðarlauf
tímian
1 blaðlaukur
1 selleristilkur
3 – 4 gulrætur
1 rófa
10 meðalstórar kartöflur

Sjóðið kjöt,vatn,salt og krydd við vægan hita í 30 min.
Skerið grænmeti í sneiðar og bita.sjóðið með í 30min.

FISKUR Í GRÆNMETISSÓSU

800 g fiskflök
200 g sveppir
½ dós ananskurl m. safa
 matarolía
1 laukur
½ blaðlaukur
2 gulrætur
2 paprikur
125 g smurostur
1 ½ dl léttmjólk
salt
pipar
paprikuduft
karrí
fiskteningur ef vill 

Leggið fiskinn í ofnfast fat ásamt sveppum og ananas.
Saxið og léttsteikið grænmeti í olíu ásamt kryddi. Bætið ostinum í og bræðið.
Hrærið mjólkina saman við smátt og smátt. Kryddið. Hellið sósu yfir fiskinn og bakið í hálftíma á 200°C.

MEKSIKANSKE KYLLINGFAJITAS

6 stk. kyllingfilet i strimler
1 stk. gul paprika
1 stk. grønn paprika
1 stk. rød paprika
ca 1½ stk. rødløk i tynne båter

Marinade:
1 ts finhakket jalapenos (ønskes sterkere, ha i mer jalapenos)
1½ båt hvitløk
2½ ss frisk koriander
1¼ dl solsikkeolje
2 ss soyasaus
2 ss worcestershire-saus
½ dl presset sitronsaft
½ dl presset appelsinsaft
godt med nykvernet pepper
½ dl tørr hvitvin eller cider

samt:
ca 10 stk. hvetetortilla
ca 1 boks ferdigkjøpt salsa
ca 1 beg. lettrømme

Guacamole:
2 stk. avocado
ca 1½ ss sitronsaft
1 båt revet hvitløk
2 stk. flådde tomat (se under)
½ stk. liten, hakket rød chili
2 ss hakket, frisk koriander

salt og kvernet pepper

FYLLT RAUÐSPRETTA

rauðsprettuflök
sítrónusafi
matarolía
salt
pipar
vorlaukar
hvítlauksrif
engiferrót
cayenne-pipar
túrmerik
ferskt dill

Hellið sítrónusafa yfir flökin, saltið og piprið og látið bíða um stund.
Blandið saman vorlauk, hvítlauk, engifer, cayenn og túrmerik og hitið varlega í olíu þar til laukurinn verður linur. Látið kólna og blandið dill saman við.
Dreifið kryddblöndu yfir flökin þeim megin sem roðið var. Rúllið saman þannig að sporðurinn sé yst. Látið í ofnfast fat og bakið undir loki í 15 - 20 mínútur við 180°C.

SPÍNATBAKA

250g spelt
2-3 tsk vínsteinslyftiduft
sjávarslat
3 msk kókósolía
1 dl vökvi, ab-mjólk eða vatn
Hnoðið saman í hrærivél, fletið út og forbakið við 200°C í 5 mínútur:

1-2 msk kókosfita
2 laukar smátt saxaðir
1-2 pokar ferskt spínat
1/2 tsk múskat
1 tsk karrí
1 tsk salt
1 dós kókosmjólk
200 g rifinn ostur eða fetaostur
200 g soðnar kartöflur

Laukurinn mýktur í ca 10 mínútur. Spínati bætt útí smátt og smátt ásamt kryddi og kókosmjólkinni. Látið malla í 10 mín. Sett í skál og ostur og kartöflum bætt útí. Setjið í forbakaða botninn. Bakið við 200°C í ca 15 mínútur.

MULLIGATAWNY SUPPE

Kjúklingasoð
Setjið vatn í stóran pott og kryddið með heilum pipar, lágviðarlaufum og gulrótum. Gott er líka að nota steinseljubúnt og sellerirót (ekki of mikið af því þó!). Skellið tvo frosna kjúklinga útí þegar suðan er komin upp. Fleytið froðann af og látið sjóða á mjög vægum hita í 2 tíma. Takið kjúklingana upp úr, kælið og skerið kjötið í mátulega bita. Kælið soðið ef það er tími til, þá er auðvelt að fleyta fituna ofan af fyrir notkun. Síið.

Setjið 200 gr. grænum linsum í bleyti á meðan kjúklingurinn sýður. Skolið og sjóðið, annaðhvort sér eða útí súpuna. . Hægt er líka að nota soðin hrísgrjón eða grjón og linsur íbland.

Skerið 4 lauka í þunnar sneiðar. Mýkið í smjöri, ekki brúna. Setjið 2 msk af góðu karríi úti óg hitið vel ígegn.
Bætið sóðið útí og sjóðið í hálftíma. Hér er hægt að sjóða grjón og linsur með, eða sjóða það sér og bæta útí í lokin.

Bætið útí stóra dós af kókósmjólk og 1/4 l af rjóma/matreiðslurjóma. Saltið eftir smekk. Súpan á EKKI að vera sölt. .

Setjið út í súpuna grjón, linsur ef það hefur verið soðið sér og kjúklingakjöt. Hitið í gegn.
Rifið grænt og súrt epli og stráið matskeið af epli yfir hvern disk. Berið fram með brauði. 

Hægt er að nota kartölfur í súpuna í stað hrísgrjóna. Upplagt að nota afganga af kartöflum kjúklingi og hrisígrjónum í þetta.